Einingar: 3
Hæfniþrep: 2
Viðfangsefni:
Áhersla er lögð á að efla færni nemanda í beitingu rytmískrar hljómfræði og hagnýtri notkun hennar í spuna og tónsmíðum. Námið miðar við að nemendur hafi vald á að hljómgreina algeng lög með tilliti til spuna ásamt því að fá góða tilfinningu fyrir tengslum hljóma og tónstiga á hljóðfæri sín.
Lýsing:
Áframhald á námsefni fyrri áfanga. Kennd eru bókstafshljómatákn fyrir fleiri hljóma, heimahljómar í moll, lánshljómar, minnkaðir sjöundarhljómar, kirkjutóntegundir, spennur, tengsl hljóma og tónstiga, hljómgreining, laglínugreining og hlustun.
Forkröfur:
Rytmísk hljómfræði 1.1.
Þekkingarviðmið: Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
-
Helstu hljómgreiningaraðferðum, laglínugreiningu og greiningu tónstiga ásamt tengslum hljómfræðinnar við hljóðfæraleik og tónsmíðar.
Hæfniviðmið: Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
-
Hljómgreina algeng lög og hljómgreiningarverkefni.
-
Laglínugreina algeng lög.
-
Rita hljóma og tónstiga.
-
Geta leikið algeng lög með tilliti til spuna.
-
Efla samleik og spuna.
Námsmat:
Tvö próf: Próf í lok áfanga, skriflegt og verklegt. Skriflegi þátturinn gildir 80% og verklegi þátturinn 20%.
- Kennari: Gunnar Hrafnsson
- Kennari: Ólafur Jónsson