Einingar: 3
Hæfniþrep:3
Viðfangsefni: Sjöundarhljómar, minnkaði hljómurinn, tóntegundaskipti til heimahljóma.
Lýsing:
Lögð er frekari rækt við að þjálfa tæknileg atriði fjögurra radda sálmastíls með áherslu á tónmál J. S. Bach. Allt efni er kynnt og æft í tímum en nemendur standa skil á heimaverkefnum í hverri viku.
Forkröfur:
Hljómfræði 1.2
Þekkingarviðmið:
Þekkja allar lausnir 7undarhljóma.
Þekkja lausnir minnkaðra þríhljóma á grannsæti
Þekkja tóntegundaskipti milli sammarka tóntegunda og upp og niður eitt formerki, þ.e. á heimahljóma í dúr eða moll utan minnkaða hljómsins.
Þekkja forhljómsstaðgengla.
Þekkja mun á díatóník og krómatík.
Leikniviðmið:
Hafa vald á ofangreindum þekkingaratriðum í hljómrænu díatónísku samhengi og geta beitt þeim í fjögurra radda tónbálki.
Hæfniviðmið:
Geta samið hljómagang innan marka námsefnis með fjölbreyttum hljómskiptum, góðri lagrænni hreyfingu sóprans og bassa og viðeigandi endum.
Geta greint og borið skynbragð á sama efnivið í verkum annarra.
Námsmat: Skrifleg heimaverkefni alla önnina og skriflegt próf í lok hennar.
- Kennari: Þórður Magnússon