Einingar: 3

Hæfniþrep: 2

 

Viðfangsefni: Tónbil, moll/dúrtónstigar, taktsláttur, einfaldar laglínur í moll og dúr, einfaldur hrynur, nótnalestur, nótnaritun.

 

Lýsing:

Nemendur syngja lög og tónbilaæfingar, fara með hryn og æfa lestur í g- og f-lykli. Þá rita þeir niður eftir eyra einfaldar laglínur og einföld hryndæmi af svipuðum toga og lært efni. Allt efni er kynnt og undirbúið í kennslutímum en nemendur þurfa að æfa sig reglulega heima og gildir það um allt námsefnið. Kennslubækur eru: Folk Song Sight Singing Series, hefti 3-4; P. Hindemith: Elementary Training; G. Dandelot: Manuel Pratique og R. Starer: Rhythmic Training.

 

Forkröfur:

 

Tónheyrn 1.1.

 

Þekkingarviðmið:

 

  • Syngja 5undir, 6undir og 7undir upp og niður frá gefnum tóni og geta greint sömu tónbil þegar þau eru slegin á píanó.

  • Stjórna fimm- og sexskiptum takti samtímis því að syngja lög eða fara með hryn.

  • Syngja alla molltónstigana upp og niður frá gefnum tóni á nótnaheitum, frumhljómur gefinn.

  • Stökkva raddlega viðstöðulaust á milli allra tóna í molltónstiganum, frumhljómur gefinn.

  • Syngja einföld lög í moll og dúr á nótnaheitum sbr. hefti 3 og 4 í Sight Singing Series.

  • Fara með ein- og tvíradda hrynæfingar sbr. kafla IV í Elementary Training og æfingar 27–36 í Rhythmic Training.

  • Skrifa niður eftir heyrn einföld lög annars vegar og hins vegar einfaldan hryn.

 

Leikniviðmið:

 

  • Hafa ofantalin þekkingaratriði þrautalaust á valdi sínu í músíkölsku samhengi.

  • Geta farið hnökralítið með þær æfingar sem settar eru fyrir.

  • Geta skráð vandkvæðalítið eftir heyrn þau dæmi sem leikin eru.

 

Hæfniviðmið:

 

  • Hafa lesfærni á ritaða tónlist.

  • Geta yfirfært hryn og tóna yfir á rittákn.

  • Geta heyrt ritaða tónlist og ritað heyrða.


Námsmat: Símat, munnleg og skrifleg próf í kennslustundum alla önnina og/eða próf í lok annar.