Einingar: 3

Hæfniþrep: 3


Viðfangsefni: Tónbil, dúr og molltónstigar, taktsláttur, laglínur í moll og dúr, hrynur, nótnalestur, nótnaritun.



Lýsing:


Nemendur syngja lög og tónbilaæfingar, fara með hryn og æfa lestur í g- og f-lykli. Þá rita þeir niður eftir eyra laglínur og hryndæmi af svipuðum toga og lært efni. Allt efni er kynnt og undirbúið í kennslutímum en nemendur þurfa að æfa sig reglulega heima og gildir það um allt námsefnið. Kennslubækur eru: Folk Song Sight Singing Series, hefti 5-6; P. Hindemith: Elementary Training; G. Dandelot: Manuel Pratique og R. Starer: Rhythmic Training.


Forkröfur: Tónheyrn 1.2.


Þekkingarviðmið:


  • Syngja 2undir, 3undir og 4undir niður og upp frá gefnum tóni og geta greint sömu tónbil þegar þau eru slegin á píanó, hraðar en í tónheyrn 1.1.

  • Stjórna 7skiptum takti samtímis því að syngja lag eða fara með hryn.

  • Stökkva viðstöðulaust á milli allra tóna dúr- eða molltónstiga, hraðar en í tónheyrn 1, frumhljómur gefinn.

  • Syngja lög í dúr og moll á nótnanöfnum sbr. hefti 5 og 6 í Sight Singing Series.

  • Fara með ein- og tvíradda hrynæfingar sbr. kafla IV og V í Elementary Training.

  • Skrifa niður eftir heyrn lög í dúr og moll annars vegar og hins vegar hryndæmi, hvort tveggja af svipuðum toga og lært efni.



Leikniviðmið:


  • Hafa ofantalin þekkingaratriði þrautalaust á valdi sínu í músíkölsku samhengi.

  • Geta farið hnökralítið með þær æfingar sem settar eru fyrir.

  • Geta skráð vandkvæðalítið eftir heyrn þau dæmi sem leikin eru.


Hæfniviðmið:


  • Hafa lesfærni á ritaða tónlist.

  • Geta yfirfært hryn og tóna yfir á rittákn.

  • Geta heyrt ritaða tónlist og ritað heyrða.


Námsmat: Símat, munnleg og skrifleg próf í kennslustundum alla önnina og/eða próf í lok annar.