Einingar: 3

Hæfniþrep: 3

 

Viðfangsefni: Tónbil, dúr og molltónstigar, taktsláttur, laglínur í moll og dúr, hrynur, nótnalestur, nótnaritun.

 

Lýsing:

 

Nemendur syngja lög og tónbilaæfingar, fara með hryn og æfa lestur í g- og f-lykli. Þá rita þeir niður eftir eyra laglínur og hryndæmi af svipuðum toga og lært efni. Allt efni er kynnt og undirbúið í kennslutímum en nemendur þurfa að æfa sig reglulega heima og gildir það um allt námsefnið. Kennslubækur eru: Folk Song Sight Singing Series, hefti 5-6; P. Hindemith: Elementary Training; G. Dandelot: Manuel Pratique og R. Starer: Rhythmic Training.

 

Forkröfur: Tónheyrn 2.1

 

Þekkingarviðmið:

 

  • Syngja 5undir, 6undir og 7undir niður og upp frá gefnum tóni og geta greint sömu tónbil þegar þau eru slegin á píanó, hraðar en í tónheyrn 1.2.

  • Syngja molltónstigana á nótnanöfnunum niður og upp frá sérhverjum tóni, frumhljómur gefinn.

  • Syngja lög í dúr og moll á nótnanöfnum sbr. kafla 6 og 7 í Sight Singing Series.

  • Fara með ein- og tvíradda hrynæfingar sbr. kafla VI og VII í Elementary Training og æfingar 37-45 í Rhythmic Training.

  • Skrifa niður eftir heyrn lög í dúr og moll annars vegar og hins vegar hryndæmi, hvort tveggja af svipuðum toga og lært efni.

 

Leikniviðmið:

 

  • Hafa ofantalin þekkingaratriði þrautalaust á valdi sínu í músíkölsku samhengi.

  • Geta farið hnökralítið með þær æfingar sem settar eru fyrir.

  • Geta skráð vandkvæðalítið eftir heyrn þau dæmi sem leikin eru.

 

Hæfniviðmið:

 

  • Hafa lesfærni á ritaða tónlist.

  • Geta yfirfært hryn og tóna yfir á rittákn.

  • Geta heyrt ritaða tónlist og ritað heyrða.


Námsmat: Símat, munnleg og skrifleg próf í kennslustundum alla önnina og/eða próf í lok annar.